Aðalvalmynd

Gagnasafn

Auglýsing

Hamingjusamir AkureyringarArnfríður Arnardóttir

Akureyringar eru mjög hamingjusamir heima fyrir og almennt mjög ánægðir með vinnufélagana. Ég er til dæmis mjög ánægð með mína yfirmenn og samstarfsfólk, og á mínum vinnustað er samband vinnufélaganna mjög gott. Við ræðum allt milli himins og jarðar, oft mikið hlegið og margir góðir gestir líta þar reglulega við í kaffi. Aldrei dytti mér í hug að skeyta skapi mínu á þessu fólki og láta það bitna á þeim þó símreikningurinn sé ekki í takt við notkunina, eða þó kattarfjandinn skíti á lóðina mína, svo dæmi séu tekin. Ekki léti ég það heldur bitna á fjölskyldunni því ég er hamingjusöm innan um mitt og mína. Því nota ég , eins og aðrir hamingjusamir Akureyringar, umferðina og verslanir bæjarins til að svala þörf minni fyrir gremju og ergelsi sem stundum setur mark sitt á hversdaginn. Þegar heldri kona á stórum svörtum ragnerover svínaði fyrir mig á ljósum og  sendi mér svo bara fingurinn (þegar ég reyndi að gera henni grein fyrir, með viðeigandi látbragði, að svona gerðum við ekki), þá vissi ég að hún var hamingjusamlega gift og á greinilega afar góða vinnufélaga. Þegar ég leit síðan betur í kringum mig sá ég að næstum allir aðrir í umferðinni bjuggu við samskonar munað. Þegar ég loks komst heil á húfi í búðina þá stóð ég mig að því að reyna, án árangurs, að troðast framúr pólverjum með útúr fullar kerrur af matvælum, já fyrir tugi þúsunda.  Hugsið ykkur bara tímann sem þetta tók! Ég hugsaði þeim þegjandi þörfina fyrir að tefja fyrir að ég fengi skjóta afgreiðslu og dró eðlilega  í efa sögur af  lágum launum þeirra. Keyrði frekar harkalega á færibandið og uppskar eitrað augnaráð annarra færibandagesta sem gáfu mér þó ekkert eftir í ákeyrslum,  bæði á mig og færibandið. Náði að losa verulega um gremju og ergelsi sem hrjáði mig þessi mánaðamót  eins og önnur þegar snjóar inn um póstlúguna, og gladdist yfir þeirri vitneskju að Akureyringar væru svona ánægðir með vinnufélagana og sína nánustu.