Ađalvalmynd

Gagnasafn

Auglýsing

framtíđardraumarArnfríđur Arnardóttir

Þar sem heilsan hefur ekki verið upp á marga fiska síðan ég lenti í bílslysinu hér um árið þá hef ég talsvert verið að velta fyrir mér framtíðinni og þá sérstaklega vinnumálum. Ekki veit ég hversu lengi ég get kennt, eða fæ leyfi til að kenna þar sem illa gengur að stunda háskólanámið vegna heilsunnar svo ekki víst að kennsluréttindin skili sér nokkurn tímann í mín hús. Ég er fullkomlega búin með uppeldiskvótann, löngu útbrunnin á því sviði eftir að hafa alið mín tvö og haft sjö stykki unglinga í vetrarvistun, svo uppeldisstörf freista ekkert sérstaklega. Datt reyndar í hug að það gæti verið flott að vera prestur og þrumað yfir lýðnum, en ég fer alltaf í ræktina á laugardags- og sunnudagsmorgnum svo þar fór það. Hef ekki meirapróf og kann ekkert á vélar svo sú deild er líka úti. Skrifstofurnar reiða sig á tölvukunnáttu  sem er ekki upp á marga hjá mér, svo eftir er verslun og þjónusta en það er svo helvíti leiðinlegt. Fór að fletta Fréttablaðinu í leit að hugljómun, og viti menn, sé þar þessa fínu grein um fjallaferð alþingismanna, ferðina sem hann Elli minn fór í og hitti Siv Friðleifs og var næstum genginn í framsóknarflokkinn. Greinilega gaman að vera þingmaður. Þarna var líka Árni Jóns svo þetta er greinilega ekki flókið starf. Velti þessu fyrir mér um stund og taldi þarna kominn raunhæfan möguleika, fara bara í pólitík! Árni Jóns,  Siv og Diddi bróðir, hva.. En svo kom Áslaugar efinn yfir mig, því þrátt fyrir allt þá trúir maður því innst inni að til þess að geta starfað á þingi þurfi ákveðna færni, getu vit og sterkar taugar, þó mýmörg dæmi sýni annað. Hvað ef ég lenti nú í svona hremmingum eins og aumingja Villi? Hvernig færi það með mig, bakveikan aumingjann?  Ég velti þessu fyrir mér um stund og var nærri búin að afskrifa þetta fína starf þegar ég einfaldlega uppgötvaði hvað það var sem klikkaði hjá Villa, og þar með var ég aftur komin inn á þing! Málið er nefnilega það að koma sér aldrei í þá aðstöðu að þurfa að segja já eða nei, ójá eða ónei, svart eða hvítt og þá gengur þetta eins og í lygasögu. Til að vera gjaldgengur á þing þarf maður einfaldlega að kunna að leika Frúna í Hamborg! Sá leikur hefur verið leikinn lengi í minni fjölskyldu svo þar kem ég sterk inn sem efnilegur kandidat. Villi greinilega ekki flinkur í Frúnni því hann verður að segja já eða nei og þess vegna allt þetta vesen.  Diddi bróður, hann kann leikinn utanað og ekkert vesen hjá honum! Stefnan því tekin á þing því mér hefur aldrei leiðst Frúin í Hamborg, get haldið út alla leið frá Akureyri til Reykjavíkur svo þingstörfin verða nú varla mikið mál.                          

Athugasemdir

1
Ţorgerđur skrifar:
Mér hefur nú alltaf fundist þú geta hvað sem er, virðist nú flest liggja vel fyrir þér - gáfur og sköpunargleði á hinum ýmsu listsviðum, svo þingmennskan gengur áreiðanlega líka upp!
21. febrúar 2008 klukkan 13:42
2
Áslaug skrifar:
Hvað ertu að þæla? Þú með alla þína hæfileika. Það eina, sem þú þarft að gera er að velja úr. Þú yrðir örugglega fín á þingi. Getur þú ekki farið í bæjarstjórn á Akureyri. Úlla frænka var hún ekki þar á fullu, eða? Þetta er örugglega í ættinni. Já, og Malla vann á Þingi! Skelltu þér bara í framboð. Í flokkinn, sem er á móti köttum, einelti í skólum, og á móti karlrembum. Taktu bara Möggu Pálu með. Það yrðu nú líf í tuskunum.
Bestu kveðjur Áslaug systir í útlöndum.
21. febrúar 2008 klukkan 15:03
3
Kristín E. skrifar:
hmmm ef þingstörfin hætta að heilla þá mæli ég með að þú gefir út bók.. til dæmis barnabók sem þú gætir skrifað (með eindæmum góður penni) og líka myndskreytt!!! og þar sem þú ert alin upp í sveit þá hefurðu væntanlega lent í alls konar ævintýrum sem krakki!!!
Það væri æðislegt að sitja uppi í rúmi með börnin mín og lesa fyrir þau bók eftir Affí frænku :D
21. febrúar 2008 klukkan 21:01
4
Malla frćnka skrifar:
Líst vel á tillögu KE, held að það sé ekki gott fyrir sálarlífið að starfa sem þingmaður..... En tek undir með systur þinni, það eina sem þú þarft að gera er að velja hvað þú vilt gera, það leikur allt í höndunum á þér ;)
21. febrúar 2008 klukkan 22:16
5
Já og svo myndskreytir þú bókina sjálf þetta verður bara æði! kv frá einni sem er ekki eins geðvond í dag og í gær
22. febrúar 2008 klukkan 08:29

Skrifa athugasemd