Aðalvalmynd

Gagnasafn

Auglýsing

stjörnugjöfArnfríður Arnardóttir

Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt í sambandi við tölvur. Gengur hægt en Elli er ekki alveg búinn að gefa mig upp á bátinn og það nýjasta er að kenna mér að nota MSN, sem ég að vísu kalla alltaf SMS börnum mínum til mikillar  ánægju, eða þannig. Það er greinilega ekki nóg að kunna að nota kerfið til að vera meðtekin í hóp hinna færustu notenda, heldur verður maður að setja sig inn í alveg nýtt málkerfi, sem einkennist af skammstöfunum, styttingum og ýmsum öðrum brellum. Nokkuð sniðugt ef mikið liggur á, en varla gott fyrir íslenskuna.  Allar þessar nýjungar  kveiktu hjá mér hugmynd sem mér finnst bráðsnjöll og vil endilega kynna fyrir stórfjölskyldunni og öðrum sem þetta lesa.  Flestir hafa nóg að gera og lítinn tíma til að eyða í endalaus skrif um sig og sína hagi´á bloggsíðum eða í tölvupósti, en langar samt að láta vita hvernig lífið gengur frá degi til dags. Í stað þess að skrifa langan texta þá gæfi viðkomandi deginum stjörnur eftir því hvernig dagurinn hefur verið, frá  einni til fimm, álíka og gæðastjörnur hótela. Í stað stjörnunnar veldi hver fjölskyldumeðlimur eitthvert tákn sem einkenndi hann sérstaklega, s.s í hegðun, útliti, drauma hans eða eitthvað álíka sem gæfi mjög skýra mynd af viðkomandi. Til dæmis þá gætu táknin í minni stórfjölskyldu verið eftirfarandi; Skúringafata, silfurbikar, mynd af Þórdísi, flugfarseðill, trommusett, lukkupottur, þjóðverjasníti,  sparireikningur í Landsbankanum, lógó hjálpræðishersins, bleikt nótnahefti, skór nr 34  osfrv. Allir ættu að eiga auðvelt með að þekkja viðkomandi af þessum táknum og þurfa því ekki að læra þau utanað. Dæmi um frábæran dag hjá nokkrum í fjölskyldunni gæti þá litið svona út: Hjá mér sjálfri; 5 skúringafötur ( hegðunareinkenni valið sem tákn) Hjá Þuríði Önnu; 5 gsmsímar ( hegðunareinkenni valið) Hjá Einari Jan; 5 viskíflöskur (  draumur valinn), Hjá Ássý; 5 rústrauðir jakkar ( útlitseinkenni valið), osfrv. Einhver tölvusnillinn hlýtur að geta útbúið táknmyndir fyrir okkur sem við einfaldlega smellum á og veljum viðeigandi fjölda tákna fyrir gæði dagsins, allir fá innsýn í líðan okkar þann daginn án þess að miklum tíma sé eytt þegar mikið er að gera.  Gaman væri að heyra hvað fólki finnst um þetta, mér finnst þetta sjálfri alveg brilliant!

Athugasemdir

1
Áslaug skrifar:
Sammála. Brilliant hugmynd. Hvar ertu med mig? Sem tjódverjasnýti eda? Annars er ekki skortur á ordum thegar ég fer af stad á annad bord. Thad er annad, sem vantar. -- Mér finnst ad fólk aetti ad vera duglegra ad skrifa komment. Eru menn feimnir ad láta sjá eitthvad eftir sig á prenti? -- Sól hér í útlöndum, og ansi kalt. Verid ad laga til og stússast. Bestu kvedjur Áslaug í útlöndum.
16. febrúar 2008 klukkan 15:26
2
Kristín E. skrifar:
heheheh snilld.... held að þú farir að fá tilboð í bloggin þín fljótlega og þau endi í bók :o)
kv
Kristín
16. febrúar 2008 klukkan 17:37
3
Malla skrifar:
Hei ég fékk ekkert tákn!!! Hvað ætti það að vera??? Lím kannski, sú sem heldur öllu saman í fjölskyldunni?? Bara hugmynd ;)
16. febrúar 2008 klukkan 17:44
4
Malla mín veit ekki hvað við ættum að nota fyrir þig það verður að vera ansi valdmannslegt tákn komið með hugmyndir en ef það ætti að vitna um ykkur systur þig og Kristínu þá kæmi mynd af Dvergunum 7 og ef um Þorgerði væri að ræða mynd af Ítala hehe...
16. febrúar 2008 klukkan 21:40
5
Þorgerður skrifar:
Hahaha.. fínt tákn fyrir mig og reyndar þig líka Þórdís...
Ætlaði einmitt að spyrja Affí að því hvaða tákn hún myndi velja fyrir mig - Affí nú siturðu í súpunni - hehe...
Sitthvað annað en lím sem mér dettur í hug um hana systur mína - hehehe...
17. febrúar 2008 klukkan 13:06

Skrifa athugasemd