Aðalvalmynd

Gagnasafn

Auglýsing

RæktinArnfríður Arnardóttir

Ég hef verið afskaplega dugleg að fara í líkamsrækt síðustu mánuði. Ekki hefur það komið til af góðu heldur hefur bágborið heilsufar ráðið þar mestu um. Eftir margra mánaða puð er árangurinn að koma í ljós, hægt og sígandi farið að móta fyrir vöðvum á stöðum þar sem þeir hafa ekki sést frá því á síðustu öld. Sem sé, ræktin er það sem virkar og fyllist ég mikilli bjartsýni í hvert skipti sem ég þrauka í svita og skítafýlu innan um lóð og bolta að ógleymdum hópi þjáningasystkina minna sem flestum líður ámóta og mér, halda í vonina um að öðlast skrokk sem samræmist þeirri ímynd sem við innst inni höfum af sjálfum okkur.. enn ung og skiljum ekkert í hvað aðrir eldast illa. Fjölskyldumyndirnar eru því algerlega óþolandi því þar neyðumst við til að sjá okkur sjálf með augum annarra, öðruvísi en þegar við horfum í spegilinn á morgnana, þá höfum við afsakanir fyrir útlitinu, erum nývöknuð og hver vaknar ekki krumpaður og með koddafar um allt andlitið, eða á kvöldin þegar við komum þreytt heim eftir vinnu. Ekkert að marka svoleiðis. En sem sé, einn daginn stend ég á miðju salagólfi ræktarinnar, andspænis speglum sem þekja allan veggin frá lofti og niður í gólf. Ég stend þarna keik,  dreg af alefli til mín 15 kílóa lóð og fyllist ánægju yfir því sem ég sé í speglinum í nokkurra metra fjarlægð. Ímynd hreystinnar! Vöðvarnir  hnykklast við átakið og sjást greinilega langar leiðir. Þvílík dásemd og unaður. Ég sé framtíðina bjartari augum, eilíflega ungur skrokkur, skorinn, mótaður og slípaður af tækjum og tólum. Sjálfsöryggið hellist yfir mig og í gleði minni sleppi ég lóðunum og geng í átt að stóra góða speglinum sem sýnir mér þetta allt svart á hvítu. Þvílík mistök! Skrokkurinn  sem svo sannarlega hefur tekið stórmiklum framförum er ekki í nokkru samræmi við toppstykkið sem við mér blasir í speglinum. Þar er allt sigið og lítið fer þar fyrir spenntum vöðvum, ávölum skorum eða heilbrygðu yfirbragði. Í örvæntingu minni lít ég í kringum mig í salnum, gái hvort nokkur hafi tekið eftir því að andlitið er ekki í takti við vöðvastæltan líkamann, bregð síðan hendinni að andlitinu og sný vanganum að speglinum og strekki hressilega á! Þvílíkur munur! Sjálfsöryggið hellist aftur yfir mig,  andlitið nú í langtum betra samræmi við skrokkinn. Augnablik gleymi ég mér og sný mér eldsnöggt að speglinum en sé óðara eftir þeim mistökum. Jing og Jang,  Jenkil og Hide, Hithcliff og Kathi ( þau síðastnemdu eiga nú ekki við hér, veit ekkert af hverju þau duttu hér inn nema þá sem tragisk áminning um óhamingju mannanna) ! Strekkta hliðin undirstrikaði skelfilegt ástand hinnar hliðarinnar enn frekar og þó ég í óðagoti þrykki nú báðum höndum um andlit og hár og strekki af alefli á andlitsvöðvunum með því að rífa svo fast í hársvörðinn að ég finn bresta í öllu draslinu, þá tekst mér ekki að losna við þessa óhugnanlegu sýn úr huga mér. Ég lít í  ofvæni í kringum mig í salnum, kannski leynast innan um 15 kílóa lóðin einhver pínulítil lóð sem hugsuð eru fyrir andlitsvöðvana. Lítil lóð sem hægt er að klemma við andlitið, til dæmis í augabrúnirnar eða kinnarnar og sveifla þeim upp og niður, eða jafnvel út á hlið. Það getur ekki verið að heil líkamsræktarstöð hafi ekkert sem styrkir og eflir andlitsvöðvana en hugsi fyrir öllum öðrum líkamspörtum! Ég reyni að róa hugann, hugsa eitthvað jákvætt, til dæmis um allar krumpuðu kerlingarnar sem hafa slegið í gegn í sjónvarpinu, án þess að hafa farið í strekkingu, já ég einbeiti mér nú  markvisst að þessari hugsun. Helen Mirren!  Hún hefur til dæmis ekki farið í strekkingu svo mér sé kunnugt um, þó mér sé ekki kunnugt um nokkur skapaðan hlut í hennar lífi, en hugsunin róar mig óneitanlega og ég sé mig í anda sem Helen Mirren, fræga leikkonu fulla af hrukkum! Dregur þó nokkuð úr ánægjunni þegar ég neyðist til að viðurkenna að ég er hvorki fræg leikkona né stefni í að geta vakið athygli fyrir óvenju sterkan karakter eða annað ámóta ánægjulegt, en þetta dugar samt í bili.  Ef til vill er bara best að halda sig í miðjum salnum, ekki of nálægt speglinum, bara þannig að allt virki fínt í fjarska. Kannski sjá allir hinir bara það sama og ég sé þegar ég hef vit á að halda mig í hæfilegri fjarlægð frá speglinum, manneskju sem virkar fjarska flott, ég hugga mig að minnsta kosti við það til að byrja með.

Athugasemdir

1
Áslaug skrifar:
Elsku systir. Ekki var vid ödru ad búast. Thú ert jafn frábaer vid ad skrifa og mála. Og ég sem hélt ad ég hefdi rod vid thér á einhverju svidi!!! Hlakka til ad lesa pistlana, og ekki síst um familíu dramatikina mánadarlega. Verda engar ástar og kúrusögur hjá thér? Elli er náttúrlega ekki í dekur deildinni (eda?)og svo er hann ekki í listinni. En-- gód byrjun-- Takk fyrir skemmtunina, og hananú. Áslaug systir í útlöndum.
10. febrúar 2008 klukkan 20:58

Skrifa athugasemd