affiarnar.bloggar.is
Til hvers bloggar fólk ?Arnfríður Arnardóttir
Þá er ég loks orðin bloggari... þó ég skilji ekki enn tilganginn með þessu! Var loksins búin að læra að senda tölvupóst á heilu grúppurnar í einu og svaka ánægð með mig og hélt að það væri nú framtíðin í samskiptum manna á milli. En enginn telst nú maður með mönnum nema kunna að blogga, sérstaklega ef menn stefna á pólitíkina en þar er bloggið víst orðið lífsnauðsynlegur tjáningamiðill. Það mun víst taka mig næstu vikur að læra að nota þetta, setja inn myndir og fleiri huggulegheit, en ég ætla að komast í gegnum það allt saman og verða fyrirmyndar bloggari, jafnvel slá Þórdísi systur út, sem telja má yfirbloggara fjölskyldunnar! Ef til vill væri hægt að skipulegga bloggið þannig að ég virki mjög gáfuleg.., umræður um menningu og listir einn daginn, pólitík þann næsta, fjölskyldudrama þann næsta...að vísu dugar nú aldrei einn dagur í það, hafa það frekar sem mánaðarþema innan stórfjölskyldunnar, já það væri flott! Já framtíðin liggur sem sé í blogginu og stefnan tekin inn í þennan einstaka heim tjáskipta.
kveðja
Kristín